Um Sprett
Sprettur er ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í stjórnun og hugbúnaðarþróun
Við erum fulltrúar nýja skólans í stjórnun og hugbúnaðarþróun þar sem fókus á virði, stöðugar umbætur og virðingu fyrir fólki fara saman. Við trúum því að þær grundvallarreglur og hugmyndir sem kristallast í Lean og Agile hugmyndafræði margfaldi árangur og skilvirkni í fyrirtækjarekstri og upplýsingatækni. Við trúum því að innan fárra ára verði sjálfgefið að fyrirtæki og stofnanir beiti Lean og Agile aðferðum, tólum og hugmyndum til þess að ná markmiðum sínum. Við ætlum að styðja við og leiða umbreytingu á íslenskum fyrirtækjum þannig að þau verði mannlegri, meira skapandi og umfram allt árangursríkari.

