Hugbúnaðarþróun
  • hugbunadarthroun

Hugbúnaðarþróun

Við þróum hugbúnað

Við sérhæfum okkur í þróun á sérlausnum og hugbúnaðarvörum fyrir viðskiptavini okkar. Hvort sem fyrirtækið þitt þarf algerlega nýtt kerfi eða veflausn, uppfærslu á núverandi kerfi, útskiptingu á "legacy kerfi" eða björgun á verkefni sem farið hefur úrskeiðiðs þá getum við hjá Spretti hjálpað þér að þróa réttu lausnina.

Við getum stutt þig og þitt fyrirtæki frá hugmynd yfir í rekstur og frá nýþróun yfir í viðhald; og þannig tekið þátt í öllu "ferðalaginu" eða bara hluta af því. Hjá okkur vinna helstu hugbúnaðarsérfræðingar landsins. Við erum eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig stjórnunarráðgjöf fyrir hugbúnaðardeildir og fyrirtæki en við höfum leitt Agile umbreytingu hjá nokkrum stærstu fyrirtækjum landsins. Þessi einstaka blanda af hugbúnaðarsérfræðingum og stjórnunarráðgjöfum gerir okkur kleift að "ná lendingu" með hugbúnaðarverkefni í hvert einasta skipti.

Þekkjum mörg forritunarmál og tækniumhverfi

Sprettur er þekktur fyrir Lean og Agile ráðgjöf og við höfum ákveðnar skoðanir á því hvernig við keyrum áfram verkefni en þegar kemur að forritunarmálum eða tækniumhverfum þá skiljum við að það er ekki bara eitt mál sem kemur til greina. Við höfum unnið verkefni í Java, .NET, Python, C++, ABAP og enn fremur unnið á Windows og Linux stýrikerfum. Við skiljum að það er mismunandi eftir aðstæðum hvaða mál eða tækniumhverfi er best að nota og við getum hjálpað þér að taka ákvörðun sem passar við þinn upplýsingatækniarkitektúr.

Vinnum í teymum

Við vinnum verkefni í teymum og trúum því að við fáum bestu lausnirnar í teymum; teymum sem hafa innanborðs hugbúnaðarsérfræðinga, stjórnunarráðgjafa og auðvitað þig sem viðskiptavin.

Af hverju náum við árangri þegar öðrum mistekst?

Við erum ekki töframenn, við erum bara með réttu vinnukerfin og -aðferðirnar og höfum ástríðu fyrir því sem við gerum. Eitt af gildunum okkar er "óþreytandi umbætur" og okkur er það kappsmál að verða betri á hverjum degi í listinni að skila hugbúnaðarverkefnum. Við nálgumst öll verkefni á sinn hátt en þó alltaf með eftirfarandi grunnhugmyndir að leiðarljósi:

  • Viðskiptafólk og tæknifólk vinnur sem teymi
  • Skiljum viðskiptaferlin fyrst
  • Gegnsæ samskipti og verkefnastjórnun
  • Fögnum breytingum
  • Byggjum gæðin inn

Að vinna með okkur er öðruvísi.

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar um hvernig við getum leyst þín vandamál.



Útlit síðu:



Leita á vefnum


Hafðu samband

Athugið: Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Panta kynningu

Athugið: Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Agile Smagile - Sprettur bloggar


Skráðu þig á póstlistann

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.



Fylgstu með okkur á


Þetta vefsvæði byggir á Eplica